Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur lagt fram frumvarp sem getur lækkað raforkureikninga í dreifbýli frá og með 1. júlí nk. Með frumvarpinu er lagt til að hækka jöfnunargjald raforku til að auka jöfnun dreifikostnaðar og draga úr mun á raforkukostnaði eftir búsetu.
Stjórn samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum fagnar frumvarpinu og því að ráðherra hafi sett þetta mikilvæga hagsmunamál á dagskrá. Fyrir köld svæði skiptir raforkuverð sérstaklega miklu máli enda vegur raforka þungt í rekstri heimila, fyrirtækja, bænda, ferðaþjónustu, skóla og annarra innviða sveitarfélaga.
Samkvæmt umfjöllun Vísis gæti raforkureikningur meðalstórs kúabús lækkað um 400–500 þúsund krónur á ári ef frumvarpið verður samþykkt. Áhrifin ná þó langt út fyrir einstaka reikninga. Þetta er byggðamál, atvinnumál og jafnræðismál.
Samtökin hafa lengi lagt áherslu á að fólk og fyrirtæki eigi að búa við sambærileg skilyrði óháð búsetu. Frumvarpið er mikilvægt skref í þá átt að jafna raforkukostnað og tryggja að ávinningur af íslenskum orkuauðlindum nýtist landsmönnum öllum.
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum munu fylgjast áfram með málinu og leggja áherslu á að breytingarnar skili sér raunverulega til heimila, atvinnulífs og sveitarfélaga á köldum svæðum.