Opið fyrir skráningu á ársfund 2026

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum boðar til ársfundar samtakanna miðvikudaginn 7. október í sal á 2. hæð Hilton Reykjavík kl. 11:00-12:30.

Ársfundur samtakanna skal halda í tengslum við fjármálaráðstefnu sveitarfélaga og eiga allir fulltrúar aðildarsveitarfélaga sem sitja ráðstefnuna seturétt á ársfundi. Komi til atkvæðagreiðslu hefur hvert sveitarfélag eitt atkvæði. NAUÐSYNLEGT ER AÐ SKRÁ SIG Á FUNDINN

Skráning á ársfundinn

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar,
  2. Ársreikningur samtakanna 2025
  3. starfs- og fjárhagsáætlun samtakanna ásamt ákvörðun um árgjöld og þóknun stjórnar,
  4. lagabreytingar (stjórn mun ekki leggja til lagabreytingar),
  5. kosning formanns stjórnar, annarra stjórnarmenn (tveir stjórnarmenn) og varastjórnar (þrír varamenn),
  6. kosning tveggja skoðunarmanna,
  7. mál sem stjórn samtakanna, einstakir fulltrúar eða sveitarstjórnir óska að tekin verði fyrir.
  8. Ávarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

Þeir sem hafa áhuga á að sitja í stjórn samtakanna eru hvattir til að senda póst á starfsmann SSKS, á netfangið bryndis@samband.is

Að fundi loknum verður boðið upp á hádegisverð fyrir fundargesti.