Er íslensk orka til heimabrúks?

Stjórn SSKS boðar til málþings um stöðuna í orkumálum undir yfirskriftinni Er íslensk orka til heimabrúks – Staðan í orkumálum með áherslu á íbúa og sveitarfélög. Málþingið fer fram í Háteigi á Grand hóteli í Reykjavík, föstudaginn 15. mars, kl. 08:30-11:30.

Dagsetningin er valin með tilliti til þess að hún er daginn eftir landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga, 14. mars. Dagskrá fundarins má finna hér að neðan.

Dagskrá fundarins

08:30Setning
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum og formaður stjórnar SSKS
Ávarp
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Erindi
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Græn orka í þágu samfélagsins
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Nýir orkugjafar og köldu svæðin
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets
Staðan í dag á orkuskiptum og orkuöryggi
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets
Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri loftslagsbreytinga og nýsköpunar hjá Orkustofnun
10:00K A F F I H L É
10:20Vilji er allt sem þarf
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar og stjórnarmaður í SSKS
Þarf að sækja vatnið yfir lækinn?
Elías Jónatansson orkubússtjóri
Land tækifæranna  
Hallgrímur Steinsson, stofnandi og framkvæmdastjóri tæknisviðs Laxeyjar í Vestmannaeyjum
Framtíðarplanið, hvað er verið að gera og hvernig tryggjum við orkuskipti, orkuöryggi og uppbyggingu?
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Guðmundur Ingi Ásmundsson, framkvæmdastjóri Landsnets
Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Atvinnuveganefndar Alþingis
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar
Elías Jónatansson orkubússtjóri
Hallgrímur Steinsson, framkvæmdastjóri tæknisviðs Laxeyjar
11:40Samantekt og slit málþingsins
Íris Róbertsdóttir, formaður SSKS og málþingsstjóri