Ársfundur SSKS 2024

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum boðar til ársfundar samtakanna miðvikudaginn 9. október í sal E á 2. hæð Hilton Reykjavík Nordica kl. 08:30-09:30.

Ársfundur samtakanna skal hald í tengslum við fjármálaráðstefnu sveitarfélaga og eiga allir fulltrúar aðildarsveitarfélaga sem sitja ráðstefnuna seturétt á ársfundi. Komi til atkvæðagreiðslu hefur hvert sveitarfélag eitt atkvæði.

Opnað verður fyrir skráningu á fundinn föstudaginn 13. september.

Dagskrá:

(a) Skýrsla stjórnar.
(b) Ársreikningar og fjárhagsáætlun.
(c) Ákvörðun um árgjald.
(d) Umræður og ályktanir um orkumál
(e) Kosning þriggja manna í stjórn og þriggja manna til vara.

Skráning