Vestmannaeyjabær stefnir á full orkuskipti í Vestmannaeyjum og forsenda þess er að Landsnet ákveði að leggja tvo nýja raforkustrengi til Vestmannaeyja. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps, sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði til að vinna tillögur um aðgerðir sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins og stuðlað geta að því að efla samfélagið í Vestmannaeyjum.
Starfshópurinn, sem var skipaður þeim Árna Sigfússyni, sem var formaður hópsins, Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum og Gísla Stefánssyni, æskulýðsfulltrúa og bæjarfulltrúa, kynnti tillögur sínar á fundi í Vestmannaeyjum í dag.
Raforkuþörf í Vestmannaeyjum er nú þegar 58 MW. Þar af eru um 44 MW ótryggur flutningur, sem þýðir að olía er notuð þegar ekki fæst orka. Þá eru ótalin uppbyggingarverkefni sem koma eiga til framkvæmda á næstu árum, þ.e. aukin raforkuþörf í fiskimjölsframleiðslu, landeldi og landtengingu skipa. Þessi verkefni kalla eftir a.m.k. 35-45 MW viðbótar raforkuþörf á næstu árum. Það má því áætla að árið 2030 verði heildarraforkuþörf í Vestmannaeyjum yfir 100 MW.
Að því er fram kemur í skýrslunni er eina leiðin til að tryggja öryggi raforkuflutninga og hringtengingu og ná 100% orkuskiptum í Vestmannaeyjum, líkt og áætlanir stjórnvalda gera ráð fyrir, að lagðir verði tveir nýir rafstrengir til Vestmannaeyja. Að öðrum kosti verði samfélagið keyrt áfram á jarðefnaeldsneyti.
Meðal annarra tillagna sem fram koma í skýrslunni er að:
- Sett verði af stað vinna að kanna frekari kosti við nýtingu lághita og annarra staðbundinna orkuöflunarkosta.
- Vestmannaeyjabær verði fyrsta sveitarfélagið í heiminum til að taka upp stefnu sem miðar að „100% fisk“, þ.e. 100% fullvinnslu og fullnýtingu allra sjávarafurða. Samhliða verði unnið að eflingu hringrásarhagkerfisins og grænni atvinnuuppbyggingu.
- Vestmannaeyjabær kanni frekar kosti þess að vinna að undirbúningi stofnun jarðvangs í Vestmannaeyjum: „Vestmannaeyjar, Unesco Global Geopark“.
- Sett verði af stað vinna við að styðja við nýsköpunarumhverfið í Vestmannaeyjum hvað varðar verkefni á málefnasviði ráðuneytisins.
Ráðuneytið og Vestmannaeyjabær munu fylgja eftir tillögum starfshópsins.