Í þessari viku eru fundir með alþingismönnum í öllum kjördæmum og viljum við í stjórn SSKS brýna fyrir ykkur að ræða við þá um niðurgreiðslur til húshitunar sem samkvæmt fjárlagafrumvarpinu munu lækka milli ára en þyrfti hækka til að koma á móts við boðaðar hækkanir á rafmagni um áramótin svo sé ekki talað um að leiðrétta þann mikla mun sem er á rafmagnshitun og hjá þeim sem hafa hitaveitur.
Nokkur atriði er gott að minnast á:
- Leggja áherslur á að brýnt sé að frumvarp Einars Kristins Guðfinnssonar og fleiri þingmanna um niðurgreiðslur til húshitunar fari í gegn, þannig að komið verði á Jöfnunarsjóði húshitunar í eitt skipti fyrir öll svo ekki þurfi að standa í þessu brasi á hverju ári.
- Vekja athygli á því að í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2014 sé gert ráð fyrir a.m.m. 75 m.kr. lækkun á fjárlagalið sem merktur er til niðurgreiðslu húshitunar var 1418 m.kr en verður 1343 m.kr.
- Ef niðurgreiðslur væri til jafns sem þær voru árið 2005 að raungildi þá þyrftu þær að vera um 550 m.kr. hærri en nú er.
- Ljóst er að verð á rafmagni mun bara hækka og ljóst ef ekkert verður gert þá verður afar erfitt fyrir fólk með rafmagnshitun að búa við þessa stöðu.
- Eins er rétt að vekja athygli á því að líklega þurfi um 350 milljónir króna til að greiða til nýrra hitaveitna vegna stofnniðurgreiðslna og þeir fjármunir eru ekki til eins og staðan er í dag og líklega eru af þessu um 250 m.kr. sem fara í nýja hitaveitu á Skagaströnd.
Mjög mikilvægt að fara vel yfir okkar mál og leggja þunga áherslu á þau.
F.h. stjórnar SSKS, Kristinn Jónasson.