Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur tilkynnt niðurstöður úr jarðhitaleitarátaki sem opnað var í vor. Markmið átaksins er að stuðla að aukinni nýtingu jarðhita til húshitunar á svæðum þar sem nú er notast við rafmagn eða olíu.
Heildarfjárhæð sem úthlutað var er 1.032 m.kr. en alls bárust 48 umsóknir frá sveitarfélögum, orkufyrirtækjum og aðilum í þeirra umboði. Verkefnin voru fjölbreytt og var heildarkostnaður verkefna sem sótt var um 6.093 m.kr. en styrkfjárhæðin sem sótt var um nam 4.082 m.kr.
Alls hlutu18 verkefni styrk:
- 8 verkefni sem snúa að jarðhitarannsóknum
- 8 verkefni sem tengjast uppsetningu varmadælna
- 2 verkefni sem miða að uppbyggingu varmageymslna
Mat umsókna var í höndum Loftlags- og orkusjóðs í samvinnu við Umhverfis- og orkustofnun.