Ráðstefna um varmadælur

Lagnafélag Íslands heldur ráðstefnu í samvinnu við Iðuna fræðasetur, Félag pípulagningameistara, Mannvirkjastofnun, Verkfræðingafélag Íslands og Tæknifræðingafélag Íslands, fimmtudaginn 22. mars 2012, kl. 13.00 í Lagnakerfamiðstöð Íslands.

Tilgangur ráðstefnunnar er að kynna varmadælur sem orkugjafa til húshitunar og nýtingu hennar á svæðum landsins þar sem hitaveita er ekki til staðar. Varmadælur eru varmaflutningakerfi og nýta varma úr umhverfinu sein og lofti, jörðu eða vatni. Á ráðstefnunni er sýnt fram á að hátt orkuverð hér á landi gerir varmadælur að góðum kosti til upphitunar saman borið við beina rafhitun.

Þá kemur varmadæla sterklega til greina sem hitagjafi húsa vegna þeirra eiginleika að skila út meiri varmaorku en sú raforka sem fer til varmaframleiðslunnar.

Dagskrá ráðstefnu um varmadælur.